Ég náði að sýna Birgi Valletta á föstudaginn og kynna hann fyrir strætóunum. Maður hefur eiginlega ekki komið til Möltu nema að hafa prófað alla vega eina strætóferð. Síðan fórum við til London í dag og skoðuðum Hyde Park meðal annars. Og núna er ég komin heim og er satt best að segja bara alveg að frjósa úr kulda!
Búin að vera í yfir 30 stiga hita í 5 vikur og kem svo í 8 gráðurnar hérna heima :) En heima er best það er alveg á tæru.
Síðan er það bara Frakkland í næstu viku með Ara og Birni að klifra frá okkur allt vit.
No comments:
Post a Comment