Monday, July 14, 2008

Hvar hef ég verið?

Ekki varð neitt úr ferðunum hjá okkur Bjögga. Nema við náðum að skoða Mdina og Rabat áður en ég var lögð inn á spítala og þar hef ég verið síðustu 4 daga. Ég fékk einhvern vírus sem leiddi til þess að ég ældi og var bara með vesen, of þornaði og eitthvað svoleiðis. Og samkvæmt Skóla lækninum þýddi þetta ekkert nema Spítalavist. Ég get svo svarið það að eftir þetta þá hafa öll aukakíló brunað í burtu þar sem ég gat og mátti ekki borða í alla vega 3 daga.

Ég verð bara að þakka Bjögga aftur fyrir það að hafa komið mér þangað og verið hjá mér alveg þangað til hann fór á laugardagsnóttina. Ég er ekki viss um að ég hefði lifað þetta annars af :)

En núna er ég sem sagt komin aftur heim til Carmen sem hefur verið með svo miklar áhyggjur að ég vissi ekkert hvert hún ætlaði. En ég held hún sé að átta sig á því að mér er hægt og rólega að batna bara núna :)

En núna er bara örstutt í það að Birgir komi til mín og hugsi um litla lasarusinn.
Ég er eins og hlaupkall, alveg magnað að ég skuli standa í lappirnar :P

En hérna eru allir strætóar og Taxar í verkfalli. Þannig að Lino er búinn að bjóðast til að ná í Birgi þegar hann kemur í nótt, ekkert smá góð fjölskylda sem ég er hjá :)

En ég segi bara bless í bili.

ps. ég hlakka GEÐVEIKT til að koma aftur heim til Íslands (ein orðin þreytt eftir þetta ævintýri).

1 comment:

Anonymous said...

Þú gjörsamlega heillaðir alla uppúr skónum á þessum spítala get ég sagt þér:p

En hey... ég einmitt las um þetta verkfall í blaðinu þegar ég var í Möltu... hehe Birgir Óheppinn að lenda einmitt í því sérstaklega eftir að þú og strætókerfið voruð orðin svona náin :p