Sunday, October 26, 2008

Frábær helgi

Þetta er búið að vera alveg frábær helgi. Það tók ekki nema 12 tíma að komast hingað til Svíþjóðar, soldið langt. Enda seinkaði flugvélinni og svo mistum við af lestinni og svona. =)

Við fórum að skoða Kjugekull, þar voru alveg heill hellingur af klifrurum að klifra. Þetta er bara ótrúlega flott svæði, en Fontainebleau hefur það fram yfir að allar leiðir þar eru merktar. Ég gat ekki séð að það væri neitt svoleiðis þarna. Kannski er samt hægt að komast yfir eitthvað sem segir manni hvað leiðirnar eru erfiðar. Það hefur alla vega verið gerð dvd um þennan stað (klifur dvd).

Núna eru bara nokkrir klukkutímar þangað til ég þarf að fara heim =( ég held ég missi bara af fluginu og verði hérna út vikuna =P það væri alveg best, fara bara heim með Birgi.

No comments: