Saturday, July 5, 2008

Sól



Jæja ég byrjaði á því að sýna Bjögga 3 bæi hérna í gær. Síðan fórum við yfir til Comino í dag og það var náttúrulega ógeðslega heitt. Ég er talsvert rauð eftir daginn. Skruppum í sjóinn og syntum yfir í aðra litla eyju sem er við Comino, þar voru alveg frekar flottir hellar :)

Það var samt alveg virkilega óþæginlegt að synda þarna yfir ef ég á vera hreinskilin hehe. Maður veit aldrei hvað er undir manni, sjórinn er frekar djúpur þarna svo að það geta leynst hin ýmsu kvikindi beint fyrir neðan mann án þess að maður hafi hugmynd um það. Þegar ég synti þarna yfir náði ég gleypa talsvert magn af sjó og var hálfan daginn að losna við saltbragðið, algjör klaufi að vennju.

En ég fór á hestbak á fimmtudaginn og núna skil ég af hverju íslensku hestarnir eru svona eftirsóttir. Þessir risastóru hestar eru ekkert smá hastir. Jafn vel á feti þá fannstu hvað þeir voru hastir. Svo brokka þeir bara þannig að þegar ég kom af baki var ég eins og 80 gamalmenni, öll skökk :D

Á morgun ætlum við að fara eitthvað um eyjuna (Möltu). Hoppa bara upp í strætó og sjá hvert hann fer með okkur. Síðan á mánudaginn verður leitin mikla af klifurhúsinu hérna. Ég er virkilega farin að sakna klifursins. Satt að segja er ég líka alveg komin með nóg af sól fyrir næsta árið held ég.
þið getið skoðað nokkrar myndir hérna frá þessu öllu: http://picasaweb.google.com/vilborg182/CominoHestarnir
Bless í bili :)

1 comment:

Anonymous said...

Urg ég öfunda þig geðveikt að vera þarna úti. Syndandi útí eyjur og eitthvað úff.