Jæja þá er klifurmótinu lokið. Ég náði 3 sæti af 7 stelpum eða svo. Náði ekki alveg að telja allar. Núna er hins vegar bara 1 klifurmót eftir í íslandsmeistaramótaröð 2007 - 2008 :) Svo kemur sumarið og þá getur maður loksins farið að koma sér út og prófað að klifra þar.... Jibby
Annars er ekki nema tjaaa hálft ár þangað til að alla vega ég og Ari skellum okkur til Frakklands að klifra. Maður verður nú að prófa líka útlensku steinana. Og svo lítur reyndar út fyrir að förini sé heitið til Flórída stuttu eftir klifrið í Frakklandi. Kannski maður finni sér klifurhús þar, ekki ólíklegt.
1 comment:
Ertu svona mikill útlendingur Vilborg! Akkuru kenniru mér ekki að klifra? það er örugglega svaka fjör
Post a Comment